
Steyptur 200kg brunnur með loki sem er sérhannaður og smíðaður fyrir Rafbox.
Brunnurinn er grafinn niður og staur festur við. Á staurinn kemur svo AURA eða HALO hleðslustöð, eftir því sem óskað er.
Sé brunnur ekki tekinn í notkun þegar grunnverkið fer fram, er lok sett á brunninn og hellulagt yfir. Það gerir það mun hagstæðara að bæta staur og stöð við síðar. Þá þarf bara að draga rafstreng í brunninn en ekki leggjast í kostnaðarsama jarðvinnu.
Verð miðast við brunn með loki. Staur og stöð seld sér.