Á tímabilinu 1. janúar 2020 til og með 31. desember 2023 fæst endurgreiddur virðisaukaskattur vegna kaupa á hleðslustöð fyrir bifreiðar til uppsetningar í eða við íbúðarhúsnæði.
DAWN snjallstöðvarnar frá Charge Amps er nýjasta afurð Charge Amps.
Stöðin hleður að hámarki á 22kW en tekur að sjálfsögðu við öllum rafbílum, hvort sem það eru tengiltvinnbílar eða 100% rafmagnsbílar.
Stöðin er með innbyggt eSIM kort og fría áskrift að bæði simkortinu og bakendakerfi Charge Amps.
Gengur inn í miðlæg, álagsstýrð hleðslukerfi Charge Amps.
Innbyggð 30mA AC og 6mA DC vörn.
Með skýjalausn/appi frá Charge Amps getur þú stjórnað stöðinni úr tölvunni eða símanum.